Veitur ohf. og Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í verkefnið: „Asparskógar – Jarðvegsskipti og lagnir veitukerfa“
Verkið felst í að leggja nýjar lagnir fyrir lóðir við Asparskóga og Beykiskóga á Akranesi, ásamt jarðvegsskiptum undir bílastæði og gangstíg norðan við Asparskóga.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 3. mars 2020.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en kl. 14:00 þann 26. mars 2020 í gegnum útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.
Ef ýtt er á skoða nánar hér að neðan flytur það ykkur beint á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.