Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í verkefnið: „Bygging húss yfir varaaflsvélar vatnsveitu Veitna“
Veitur ohf. ætla að setja upp nýja varaaflsstöð á lóð við A12 að Vegbrekkum 43, 110 Reykjavík.
Byggja þarf skel yfir þrjár varaaflsvélar og er miðað við stálgrindarhús.
Húsið á að vera í stíl við núverandi aðveitustöð á lóðinni og við hliðina á nýju varaaflsstöðinni á að vera olíutankur sem fæðir varaaflsvélarnar.
Nýja húsið á að innihalda vélarsal, háspennurými og lágspennurými/stjórnrými.
Húsið stendur í brekku svo fjarlægja þarf jarðveg til að koma húsinu fyrir.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 3. mars 2020.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en kl. 14:00 þann 25. mars 2020 í gegnum útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.