Home Fréttir Í fréttum 04.03.2020 Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 4 og 5

04.03.2020 Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 4 og 5

108
0
Mynd: visir/vilhelm

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 4 og 5,  útboð nr. 14740

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Um er að ræða endurmálun og nýmálun í ýmsum mannvirkjum Reykjavíkurborgar.  Bjóðendum er heimilt að bjóða í einstök verkefni og/eða öll verkefnin.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 föstudaginn 7.  febrúar 2020.  Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.  
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnir sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 4. mars 2020.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is