F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:
Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 1, 2 og 3, útboð nr. 14739
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða endurmálun og nýmálun í ýmsum mannvirkjum Reykjavíkurborgar. Bjóðendum er heimilt að bjóða í einstök verkefni og/eða öll verkefnin.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 föstudaginn 7. febrúar 2020. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnir sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. mars 2020.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is