Home Fréttir Í fréttum Svona mun Hafnarfjörður líta út samkvæmt nýju skipulagi-

Svona mun Hafnarfjörður líta út samkvæmt nýju skipulagi-

359
0
Myndir: Hafnarfjörður

Nýtt rammaskipulag fyrir Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði, sem felur í sér uppbyggingu við hafnarsvæðið með blandaðri byggt í sátt við aðliggjandi hverfi, var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar.

<>

Við tekur nú aðalskipulagsferli og síðan deiliskipulagsvinna fyrir einstaka reiti.

Undirbúningur fyrir nýja skipulagið hófst árið 2003 en um haustið 2014 var haldinn opinn íbúafundur um framtíð hafnarsvæðisins þar sem íbúar og hagsmunaaðilar gátu komið hugmyndum sínum á framfæri og voru tvær tillögur sem báru sigur úr býtum úr hugmyndasamkeppni árið 2018.

Markmið rammaskipulags fyrir hafnarsvæðið er að endurmóta uppbyggingu við Fornubúðir, Flensborgarhöfn og Óseyrarsvæði.

Til stendur að skapa heildstæðari byggð í anda sögu og umhverfisgæða staðarins með betri landnotkun og nýtingu innviða að því er fram kemur í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.

„Nýtt rammaskipulag markar tímamót. Nú getum við hafist handa við uppbyggingu á hafnarsvæðinu okkar“ segir Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

„Hafnarsvæðið býður upp á mikla möguleika og tækifæri bæði til búsetu og rekstrar og efa ég ekki að eftirspurn eftir íbúðum og lóðum eigi eftir að vera mikil.

Þarna mun rísa skapandi og skemmtilegt hverfi sem hefur sterka tengingu við sögu, sjóinn og miðbæinn.“

 

Áhersla er lögð á að rekstur fyrirtækja á hafnarsvæðinu verði tryggður og að þar sé gott viðlegu- og þjónustusvæði fyrir minni fiskiskip, smábátaútgerð og skemmtibáta.

Rammaskipulagstillagan endurspeglar markmið svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins með tilliti til þéttingar byggðar á fyrirhuguðum þróunar- og samgönguási.

Áhersla er einnig lögð á vistvænar samgöngur, meðal annars með góðum tengingum við aðliggjandi byggð í formi hjóla- og göngustíga og nálægð við biðstöð Borgarlínu á Strandgötu.

Meðfram hafnarbakkanum er komið fyrir bryggjupöllum sem mynda samfellda gönguleið frá miðbæ að Fornubúðum 5 og tengjast útivistarsvæði og torgum. Opin svæði og sjónlínur milli húsa tryggja að sjónræn tengsl verði á milli hafnarinnar og byggðar ofan í hlíðinni.

Loading..