Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í verkefnið: „Nýbygging dreifistöðva – Skógarvegi og Bjarkarholti“
Verkefnið felst í byggingu tvggja staðsteyptar dreifistöðvar sem eru grundaðar á bögglabergspúða, önnur stöðin er við Skógarveg 6a í Reykjavík og hin er við Bjarkarholt 22a í Mosfellsbæ, sjá nánari upplýsingar í útboðsgögnum.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur frá og með 17. janúar 2020.
Tilboðum skal skilað eigi síðar en kl. 14:00 þann 10. febrúar 2020 í gegnum útboðsvef Orkuveitu Reykjavíkur.