Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í fjaðrandi íþróttagólfdúk í íþróttasal Digraness við Skálaheiði 2, Kópavogi.
Verkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi á 1.675 m2 af fjaðrandi íþróttagólfdúk samkvæmt útboðsgögnum.
Útboð þetta er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu (EES)
Verkinu skal að fullu lokið 31. júlí 2020
Útboðsgögn verða afhent rafrænt og skulu þeir, sem óska eftir útboðsgögnum fyrir verk þetta, senda tölvupóst á netfangið utbod@kopavogur.is, frá og með þriðjudeginum 21. janúar nk.
Í tölvupósti skal koma fram nafn tengiliðs vegna útboðsins, símanúmer, netfang og nafn fyrirtækis.
Tilboð skulu hafa borist í þjónustuver Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 25. febrúar 2020 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þar mæta.