Home Fréttir Í fréttum Reið- og göngubrú byggð yfir Eyjafjarðará

Reið- og göngubrú byggð yfir Eyjafjarðará

224
0
Mynd: bbl.is Framkvæmdir eru hafnar við smíði brúar yfir Eyjafjarðará en hún mun tengja austur- og vesturbakka Eyjafjarðar. Brúin nýtist umferð hestafólks um svæðið en einnig þeim fjölmörgu sem þangað fara í fuglaskoðunar- og gönguferðir.

„Við fögnum því fyrst og fremst að málið er í höfn og framkvæmdir hafnar. Búið er að tengja saman austur og vesturbakka Eyjafjarðarár með landfyllingu og hægt að ganga þurrum fótum yfir í Stórhólma,“ segir Sigfús Ólafur Helgason, framkvæmdastjóri Hestamannafélagsins Léttis, um smíði brúar yfir Eyjafjarðará en hún mun nýtast hestafólki á ferð um Kaupvangsbakka, á leið fram í Eyjafjörð eða austur í Þingeyjarsýslu.

<>

Framkvæmdir við smíðina hófust á dögunum
Nokkur styrr stóð um brúarsmíðina, Léttismenn hafa undanfarið eitt og hálft ár tekist á við bæjaryfirvöld á Akureyri um smíðina og hver beri kostnað af henni.

Brúin skiptir verulegu máli fyrir hestafólk en hún nýtist fyrir hestaumferð milli Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu og eins vegna umferðar hestafólks fram í Eyjafjörð. „Það var á stundum tekist á við bæjaryfirvöld en við töldum okkur hafa réttinn okkar megin og sem betur fer fékk þetta mál farsælan endi,“ segir Sigfús.

Vonum að verkið vinnist hratt og vel
Hann segir Léttisfólk fagna því að framkvæmdir við brúarsmíðina séu hafnar og að þetta erfiða mál sé að baki. „Við vonum að verkið vinnist hratt og vel og stefnum að því að vígja þessa nýju reið- og göngubrú á Eyjafjarðará með viðhöfn á mikilli hátíð sem efnt verður til síðla í maí á næsta ári í tengslum við hina árlegu Bakkareið Léttis á Kaupvangsbökkum,“ segir Sigfús og bætir við að nýja brúin verði glæsilegt mannvirki sem nýtast mun sem tenging milli austur- og vesturbakka um ókomin ár.

Mikil samgöngubót fyrir hestamenn og útivistarfólk
„Nýja brúin á Eyjafjarðará verður okkur öllum til sóma og mikil samgöngubót fyrir, ekki bara okkur hestamenn eina, heldur líka allt annað útivistarfólk sem notar bakka Eyjafjarðarár í ríkum mæli til göngu- og fuglaskoðunar. Við Léttismenn börðumst því ekki bara fyrir brúnni fyrir okkur hestamenn, heldur miklu fleiri líka,“ segir Sigfús.

Heimild: bbl.is/Margrét Þóra Þórsdóttir