Home Fréttir Í fréttum Gamla íþróttavallarhúsið í Njarðvík rifið á aðeins einum degi

Gamla íþróttavallarhúsið í Njarðvík rifið á aðeins einum degi

232
0
Mynd: Sudurnes.net

Gamla íþróttavallarhús Njarðvíkur við Vallarbaut 14 hefur verið fjarlægt.

<>

Mikil sjóræn breyting hefur orðið á svæðinu í kjölfarið.

Það var Ellert Skúlason ehf. sem sá um framkvæmdina.

Húsið var þjónustuhús ungmennafélags Njarðvíkur meðan félagið var með knattspyrnuaðstöðu sína þar.

Mikil uppbygging hefur verið á svæðinu á undanförnum tveimur áratugum, með byggingum stjórra fjölbýlishúsa, hjúkrunaheimilis og þjónustukjarna.

Mynd: Sudurnes.net

Fyrir rúmum mánuði óskaði Reykjanesbæ eftir tilboðum í niðurrif hússins og fékk Ellert Skúlason ehf. verkið.

Að sögn Tryggva Þórs Bragasonar hjá eignaumsýslu Reykjanesbæjar var mjög vel að verkinu staðið.

Niðurrif hafið aðeins tekið einn dag. Sökkul verður brotinn upp og fjarlægður í þessari viku.

Samkvæmt tilboði átti verkinu að vera lokið fyrir árslok.

Heimild: Sudurnes.net