Home Fréttir Í fréttum Seldu eitt einbýlishús og byggðu sex í sömu götunni í Grindavík

Seldu eitt einbýlishús og byggðu sex í sömu götunni í Grindavík

343
0
Mynd: Visir.is

Hjónin Grettir Sigurjónsson og Alda Margrét Hauksdóttir réðust í gríðarlega stórt verkefni í Grindavík á dögunum, að byggja sex einbýlishús ásamt börnunum sínum.

<>

Hugmyndin kom frá þeim Hjalta Þór Grettissyni og Sunnu Jónínu Sigurðardóttur og voru öll systkinin til í slaginn.

Grettir og Alda tóku því þá ákvörðun að selja sína eign, og var ætlun fjölskyldunnar að byggja sex einbýlishús í sömu götu.

Allt eru þetta einingahús sem koma til landsins í pörtum og voru fengnir starfsmenn frá Lettlandi til að aðstoða við bygginguna.

Fjallað var um málið í síðasta þætti af Gulla Byggi á mánudaginn á Stöð 2 og má sjá brot úr þættinum hér að neðan.

Myndband frá Stöð 2

Heimild: Visir.is