Vegagerðin óskar eftir tilboðum í sjóvörn á Akranesi. Verkið felst í byggingu sjóvarnar við Breiðina, lengd sjóvarnar eru um 180 m.
Helstu magntölur:
- Útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.000 m3
- Upptekt og endurröðun grjóts um 1.000 m3
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. mars 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 11. september 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtdaginn 26. september 2019.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.