Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Fram­kvæmdir loks hafnar við Hús ís­lenskunnar

Fram­kvæmdir loks hafnar við Hús ís­lenskunnar

283
0
Mynd: Háskóli Íslands/Gunnar Sverrisson

Fram­kvæmdir við Hús ís­lenskunnar eru nú hafnar og undir­ritaði Lilja Al­freðs­dóttir, Guð­rún Ingvars­dóttir, for­stjóri Fram­kvæmda­sýslu ríkisins og Karl Andreas­sen for­stjóri ÍSTAKs samning um fram­kvæmdina á föstudag. Heildar­kostnaður við fram­kvæmdina er á­ætlaður 6,2 milljarðar króna.

<>

Á föstudag undirritaði mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins og Karl Andreassen forstjóri ÍSTAKs samning um framkvæmd byggingu Húss íslenskunnar á byggingastað hússins við Arngrímsgötu í Reykjavík.

Framkvæmdir við bygginguna eru nú hafnar og fer verkfræðistofan Efla með framkvæmdaeftirlit og byggingastjórn. Aðalhönnuðir byggingarinnar eru Hornsteinar arkitektar ehf.

Framkvæmdin hefur átt sér langan aðdraganda, svo jög að byggingasvæðið fékk viðurnefnið „hola íslenskra fræða“, en fyrir nokkrum dögum voru liðin ellefu ár frá því að tillagan sem valin var til byggingar var fyrst kynnt almenningi.

Fram­kvæmd­um var svo slegið á frest í kjöl­far efna­hags­hruns­ins og var verkefnið sett á ís öðru sinni árið 2013 þar sem tilboð í framkvæmdina voru yfir kostnaðaráætlun nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðiflokks og Framsóknar.

Samþykkti Alþingi í kjölfarið árið 2016 að greiða verktakanum Jáverk 120 milljónir í skaðabætur eftir að hætt hafði verið við samning við verktakan um framkvæmdina.

„Íslensk tunga er undirstaða og fjöregg íslenskrar menningar, við viljum sýna henni og menningararfinum sóma.

Hús íslenskunnar mun þjóna fjölbreyttum tilgangi og verður um leið mjög táknræn bygging fyrir mikilvægi tungumálsins fyrir okkur öll,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir af þessu tilefni, „handritin eru einar merkustu gersemar þjóðarinnar og geyma sagnaarf sem er bæði dýrmætur fyrir okkur og hluti af bókmenntasögu heimsins.“

Framkvæmdum ljúki í sumarlok 2023

Hús íslenskunnar verður á þremur hæðum auk kjallara undir hluta hússins og opins bílakjallara. Gönguleið verður milli Háskóla Íslands og Þjóðarbókhlöðu í gegnum bygginguna.

Ráðgert er að bílakjallari hússins verði risinn fyrir lok nóvember 2019 og að uppsteypu fyrstu hæðar ljúki um mitt ár 2020. Reiknað er með að húsið verði fokhelt í byrjun árs 2021 og að framkvæmdum ljúki í sumarlok 2023.

Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður 6,2 milljarðar kr. Ríkissjóður mun fjármagna um tvo þriðju af heildarkostnaði og Háskóli Íslands um þriðjung með sjálfsaflafé.

„ Í Húsi íslenskunnar verður fjölbreytt starfsemi Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Þar verða sérhönnuð rými s.s. fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesrými fyrir háskólanema, fyrirlestra- og kennslusalir, skrifstofur og bókasafn.

Á undanförnum árum hefur ekki verið unnt að hafa opnar sýningar á handritum sem varðveitt eru hjá Stofnun Árna Magnússonar en með tilkomu hússins verður bylting í aðstöðu stofnunarinnar til að varðveita, rannsaka og miðla menningararfi þeim sem handritin geyma,“ segir í tilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Heimild: Frettabladid.is