Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið: „Vetrarþjónusta gatna í Mosfellsbæ 2019-2022“
Í verkinu felst snjóruðningur og hálkuvörn á öllum helstu umferðargötum í Mosfellsbæ.
Helstu magntölur eru:
Götur í forgangi 1. Götulengd: 17,8 km (ruðningsvegalengd 35,6 km)
Götur í forgangi 2 Götulengd: 13,0 km (ruðningsvegalengd 26,0 km)
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 2. hæð frá og með klukkan 12:00 á þriðjudeginum 27. ágúst 2019.
Tilboðum skal skilað á sama stað, bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, eigi síðar en þriðjudaginn 10. september 2019 kl.11:00 og þau opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.