F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Elliðaárdalur milli Stekkjarbakka og Fagrahvamms. Göngu- og hjólastígur, útboð nr. 14626
Verkið felst í gerð göngu- og hjólastígs meðfram Reykjanesbraut frá Stekkjarbakka að Fagrahvamm.
Jarðvegsskipta skal undir stígum, leggja jöfnunarlag, malbika, reisa ljósastólpa ásamt gerð grjóthleðslu, yfirborðmerkingum, skiltun, frágangi og ræktun.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 3.000 m³
- Fylling 2.200 m³
- Malbik 2.700 m²
- Ljósastólpar 20 stk
- Þökulögn 3.000 m²
Lokaskiladagur verksins er 15. desember 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 27. ágúst 2019 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:10, 10. september 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is