Innkaupadeild Borgartúni 12 -14 f.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar óskar eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Eiðsgrandi. Seltjarnarnes – Boðagrandi. Hjólastígur, útboð 14625
Verkið felst í gerð hjólastígs meðfram Eiðsgranda frá bæjarmörkum Seltjarnarnesbæjar að móts við Boðagranda. Jarðvegsskipta skal undir stígum, leggja jöfnunarlag, malbika, reisa ljósastólpa ásamt gerð yfirborðsmerkinga, skiltun, frágangur og ræktun.
Helstu magntölur eru:
• Gröftur og uppúrtekt 2.100 m3
• Grúsarfylling 1.650 m3
• Malbikun stíga 2.060 m2
• Ljósastólpar 20 stk.
• Þökulögn 1.320 m2
Lokaskiladagur verksins er 15. desember 2019.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá þriðjudeginum 27. ágúst 2019 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupaskrifstofu. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupaskrifstofu Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, 10. september 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupaskrifstofu 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is