Verkkaupi er Veitur ohf.
Verkið felst í að útbúa skurðstæði fyrir nýjan 11 kV háspennustreng ásamt því að ganga frá skurðstæðum að útdrætti loknum.
Lagður verður nýr 3×240 Al PEX 11 kV háspennustrengur frá Bergstaðastræti nr. 44, meðfram Baldursgötu að dreifistöð 13 við Freyjugötu nr. 21.
Eldri háspennustrengur sem afleggst skal fjarlægjast og fargast á viðurkenndum urðunarstað í samráði við fageftirlitsmann Veitna.
Verkinu er skipt í tvo áfanga og skal verktaki klára Verkáfanga 1 áður en byrjað er á Verkáfanga 2.
Byrjað skal á verkinu (upphafsfundur) 12. september og skal því lokið sem fyrst, en í síðasta lagi 31. október.