Home Fréttir Í fréttum Lagning nýs vegar í Hestfirði og Seyðisfirði í Ísafjarðardjúpi gengur samkvæmt áætlun

Lagning nýs vegar í Hestfirði og Seyðisfirði í Ísafjarðardjúpi gengur samkvæmt áætlun

360
0
Horft af Eiðinu ofan í Seyðisfjörðinn. Mynd: BB.is

Lagning nýs vegar í Hestfirði og Seyðisfirði í Ísafjarðardjúpi gengur samkvæmt áætlun að sögn Guðmundar Ólafssonar hjá Suðurverki ehf.

<>

Um er að ræða 7 km langan veg frá Leiti í Hestfirði , yfir Eyrarhálsinn og út Seyðisfjörðinn að Eyri.

Verklok eru áætluð í september 2020 “ á sama tíma og verklok eru í Dýrafjarðargöngunum“ segir Guðmundur.
Gert verður hlé á framkvæmdum yfir verslunarmannahelgina og hafist aftur handa þann 12. ágúst.

Um er að ræða að nokkru leyti nýjan veg. Yfir hálsinn er vegurinn lækkaður en hækkaður í hlíðunum báðum megin og þannig er veghallinn lækkaður og auk þess eru teknar af blindhæðir. Í Seyðisfirðinum er veglínunni breytt nokkuð.

Nýja veglínan Hestfjarðarmegin í Eiðinu.
Hér sést betur hvernig hallinn er minnkaður Hestfjarðarmegin.
Vegurinn er lækkaður efst á Eiðinu.

 

Heimild: BB.is