Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Heilbrigðisráðuneytis og Ríkiseigna, óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við verkefnið HVE Akranesi, sjúkraskýli og endurnýjun lagna á lóð.
Um er að ræða byggingu 134 m2 bílaskýlis fyrir sjúkrabíla við Heilbrigðisstofnun Vesturlands Merkigerði 9 á Akranesi ásamt breytingum á flóttastiga frá B-álmu heilbrigðisstofunarinnar.
Samhliða munu Ríkiseignir endurnýja lagnir á lóð.
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. Júli 2020.
Nánari upplýsingar og útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/.
Ekki verður haldinn hefðbundinn opnunarfundur.
Tilboðum skal skilað rafrænt í útboðskerfinu fyrir kl. 12:00, 28. ágúst 2019.
Fyrirspurnarfrestur er til 16. ágúst 2019
Skilafrestur tilboða (rafrænt í gegnum TendSign) fyrir kl. 12:00, 28. ágúst 2019
Opnun tilboða (rafrænt) 28. ágúst kl. 13:00.