Home Fréttir Í fréttum Byggja nýtt fjölbýlishús fyrir tekjulægra fólk á Akureyri

Byggja nýtt fjölbýlishús fyrir tekjulægra fólk á Akureyri

368
0
Gudmannshagi 2 Mynd: Eining-Iðja

Fyrir helgi hófust framkvæmdir á nýju fjölbýlishúsi við Gudmannshaga 2 á Akureyri þar sem fyrirtækið Lækjarsel ehf. mun byggja hús fyrir Bjarg íbúðafélag.

<>

Félaginu er ætlað að veita tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að íbúðarhúsnæði í langtímaleigu og er rekið án hagnaðarmarkmiða.

Eining-Iðja greindi frá framkvæmdinni í fréttatilkynningu.

Gudmannshagi 2 Mynd: Eining-Iðja

31 íbúð tilbúin á næsta ári
Fyrir ári síðan undirrituðu Akureyrarbær og Bjarg íbúðarfélag viljayfirlýsingu um byggingu 75 íbúða á Akureyri.

Síðan þá hefur undirbúningur og hönnun fjölbýlishússins staðið yfir en nú eru framkvæmdir hafnar. Í húsinu verður 31 íbúð sem allar eru í smærri kantinum frá eins til fimm herbergja.

Fyrstu fjórar íbúðirnar verða afhentar Bjargi í ágúst 2020 og síðan næstu 27 í nóvember sama ár.

Byggingin sjálf er á þremur hæðum með lyftu og stigahúsi. Arkitektar hjá Tendra Arkitektum teiknuðu húsið en verkfræðingarnir eru frá AVH á Akureyri. Rafhönnun hússins er í höndum Raftákns og um lóðarhönnun sér teiknistofan Storð ehf.

Heimild: Kaffid.is