Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Faxaflóahafnir undirrita verksamnings E. Sigurðsson ehf. vegna söluhúsa við Ægisgarð

Faxaflóahafnir undirrita verksamnings E. Sigurðsson ehf. vegna söluhúsa við Ægisgarð

378
0
Á myndinni má sjá Guðmund Eiríksson forstöðumann tæknideildar Faxaflóahafna og Eyjólf Sigurðsson framkvæmdastjóra E. Sigurðssonar Mynd: Faxaflóahafnir

Í dag, miðvikudaginn 15. maí, var skrifað undir verksamning vegna söluhúsa við Ægisgarð. Verktakinn er E. Sigurðsson ehf.

<>

Verkið felst í byggingu sex söluhúsa og einu inntaks- og salernishúsi við Ægisgarð, ásamt tilheyrandi jarðvinnu og yfirborðsfrágangi.

Jafnframt á að koma fyrir sökklum fyrir sjöunda söluhúsið og undirbúa lagnir fyrir seinni tíma tengingu. Lagnir í götu verða endurnýjaðar.

Verktaki byggir húsin og steyptar undirstöður á Seltjarnarnesi í sumar og flytur á verkstað.

Framkvæmdir við Ægisgarð hefjast í október 2019. Verklok eru áætluð í apríl 2020.

Heimiild: Faxaflóahafnir.is