Home Fréttir Í fréttum 07.05.2019 Ægisborg endurgerð lóðar 2019 1. áfangi – Jarðvinna

07.05.2019 Ægisborg endurgerð lóðar 2019 1. áfangi – Jarðvinna

196
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Ægisborg endurgerð lóðar 2019 1. áfangi – Jarðvinna. Útboð nr. 14443

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:

Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar leikskólans Ægisborgar við Ægisíðu 104, 107 Reykjavík.

Svæðið næst skólanum er undir, um það bil 1.200 m².

Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á öllu svæðinu. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.

Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. júlí 2019 vegna vinnu við leiktæki, fallvarnarefni og gervigrasi. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 15. júlí til 10. ágúst 2019.

Verktaki þarf að samræma sína vinnu gagnvart öðrum framkvæmdaraðilum á lóðinni og taka fullt tillit til þeirra vinnu.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þriðjudaginn 9. apríl 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 7. maí 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is