Home Fréttir Í fréttum 23.04.2019 Hverfisgata endurgerð. Ingólfsstræti – Smiðjustígur

23.04.2019 Hverfisgata endurgerð. Ingólfsstræti – Smiðjustígur

371
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Veitna ohf. og Mílu efh. er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Hverfisgata endurgerð. Ingólfsstræti – Smiðjustígur, útboð nr. 14442

Helstu magntölur eru:
Gröftur: 1870 m3
Fyllingar: 1.200 m3
Skurðsnið – gröftur: 2100 m3
Skurðsnið – fylling: 2100 m3
Skurðsnið – losun á klöpp: 1600 m3
Fráveitulagnir: 670 m
Kaldavatnslagnir: 320 m
Hitaveitulagnir – einangruð stálrör: 570 m
Raflagnir – jarðstrengir og jarðvír: 590 m
Götulýsing – ljósastólpar: 16 stk
Púkkmulningur: 2.700 m2
Snjóbræðsla: 1.700 m2
Malbik: 2.200 m2
Hellulögn: 1.610 m2

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst í endurgerð Hverfisgötu á milli Ingólfsstrætis og Smiðjustígs, sem og lagningu fráveitu- og kaldavatnslagnar í Ingólfstrætis á milli Bankastrætis og Hverfisgötu, auk tenginga inn í aðliggjandi götur.

Skipt verður um jarðveg samkvæmt kennisniðum. Lagnir veitufyrirtækja verða endurnýjaðar að stórum hluta.

Verkið felst í að grafa og fylla í götu, gangtéttar, hjólastíga og bílastæði, grafa og fylla vegna fráveitu-, vatnsveitu-, hitaveitu-, rafveitu-, fjarskipta- og götulýsingarlagna, leggja fráveitu-, hitaveitu-, rafveitu-, fjarskipta- og götuljósalagnir, leggja snjóbræðsluslöngur, reisa ljósastólpa, malbika, leggja grásteinskant, leggja hellur og ganga frá gróðursvæðum.

Leggja skal snjóbræðslulagnir í gatnamót, gangstéttar og hjólastíga og ganga frá yfirborði með götugögnum og öðrum mannvirkjum í samræmi við útboðsgögn.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá þriðjudeginum 9. apríl 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.

Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 23. apríl 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is