Home Fréttir Í fréttum Tillaga um úttekt á Gröndalshúsi felld

Tillaga um úttekt á Gröndalshúsi felld

83
0
Mynd: Vísir/Vilhelm

Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um úttekt á Gröndalshúsi var felld, en hann segir framkvæmdir hafa farið 198 milljónir fram úr áætlun. Borgarfulltrúi Miðflokksins segir rekstur borgarinnar í molum og krefjast borgarfulltrúarnir tveir að borgarstjóri axli ábyrgð og segi af sér.

<>

Skýrsla innri endurskoðunar um verklegar framkvæmdir og innkaupamál Reykjavíkurborgar var kynnt í borgaráði á fimmtudaginn. Borgin fékk rautt ljós vegna gerðar kostnaðaráætlana við verkframkvæmdir.

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins sendi inn tillögu þess efnis að innri endurskoðun gerði sambærilega úttekt á Göndalshúsi og gerð var á endurbyggingu braggans. En hún segir að Gröndalshús hafi farið 198 milljónum króna fram úr áætlun.

„Sú tillaga að gera sambærilega úttekt á Gröndalshúsi var felld. Það kom umsögn þar sem var ákveðnum rökum beitt í því. Mér fannst þau rök frekar léleg. Þar var sagt að starfsmennirnir sem komu að þessu væru hættir og þetta hefði verið gert í samráði við Minjavernd,“ sagði Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins.

Kolbrún hefur einnig óskað þess að úttekt verið gerð á nýja vitanum við Sæbraut og Aðalstræti 10 en hún bíður nú svara vegna fyrirspurnar sinnar.

Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins segir skýrslu innri endurskoðunar kolsvarta og að rekstur og stjórnsýsla Reykjavíkurborgar sé í molum.

„Hlemmur mathöll fer 102 prósent fram úr áætlun miðað við kostnaðaráætlun eitt og tvö, en miðað við upphaflegu framkvæmdirnar er þetta að fara fram um 300 prósent. Þetta er alveg gríðarleg framúrkeyrsla og þetta verkefni er augljóslega rekið alveg eins og bragginn,“ sagði Vigdís Hauksdóttir, borfarfulltrúi Miðflokksins.

Þá vilja þær báðar sjá borgarstjóra axla ábyrgð á rekstrinum.

„Það er mín skoðun að honum beri tafarlaust að segja af sér sem borgarstjóri. Því þetta er orðið gott. Þetta er bara orðið of mikið,“ sagði Vigdís.

„Ég hef sagt og við sögðum það mörg í minnihlutanum í braggamálinu að borgarstjóri ætti að segja af sér. Það er löngu orðið tímabært að hann íhugi það alvarlega,“ sagði Kolbrún.

Heimild: Visir.is