Home Í fréttum Niðurstöður útboða Opnun útboðs: Reykjanesbraut (41), Kaldárselsvegur – Krýsuvíkurvegur (EES útboð)

Opnun útboðs: Reykjanesbraut (41), Kaldárselsvegur – Krýsuvíkurvegur (EES útboð)

589
0

Tilboð opnuð 19. mars 2019. Tvöföldun Reykjanesbrautar í Hafnarfirði milli Kaldárselsvegar og Krýsuvíkurvegar, auk allra vega- og stígagerðar sem nauðsynleg er til að ljúka gerð vegaframkvæmdanna endanlega.

<>

Lengd útboðskaflans er um 3,2 km. Þá er innifalin breikkun vegbrúar yfir Strandgötu og gerð tveggja göngubrúa yfir Reykjanesbraut við Ásland og Þorlákstún. Einnig er innifalin gerð umtalsverðra hljóðvarna, bæði hefðbundinna hljóðmana, hljóðveggja og mana með jarðvegshólfum.

Þá eru í verkinu breytingar á lagnakerfum veitufyrirtækja sem og nýlagnir og veglýsing. Loks er innifalinn frágangur á landi og landmótun auk annarra þátta sem nauðsynlegir eru til að ljúka verkinu.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Hafnarfjarðar og veitufyrirtækja.
Helstu magntölur eru:

  • Rif malbiks og gangstétta 24.000 m2
  • Bergskeringar 26.000 m3
  • Fyllingar í vegagerð 50.000 m3
  • Jarðvegsfyllingar í hljóðvarnir 65.000 m3
  • Fláafleygar 18.000 m3
  • Lagnaskurðir 2.000 m
  • Ofanvatnsræsi 3.200 m
  • Brunnar 39 stk.
  • Styrktarlag 27.000 m3
  • Burðarlag 12.000 m3
  • Malbik 134.000 m2
  • Gangstígar 2.200 m2
  • Kantsteinar 6.900 m
  • Vegrið 7.500 m
  • Götulýsing, skurðgröftur og strengur 6.000 m
  • Ljósastaurar 120 stk.
  • Mótafletir 1.380 m2
  • Járnalögn, slakbending 80.300 kg
  • Eftirspennt járnalögn 10.400 kg
  • Steypa 820 m3
  • Stálvirki 56 tonn
  • Timburgólf 280 m2

Verkinu skal vera að fullu lokið 1. nóvember 2020.