Home Fréttir Í fréttum 09.04.2019 Rimaskóli, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi, jarðvinna

09.04.2019 Rimaskóli, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi, jarðvinna

283
0
Rimaskóli Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Rimaskóli, endurgerð lóðar 2019 – 1. áfangi, jarðvinna. Útboð nr. 14458

<>

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið er 1. áfangi í endurgerð lóðar Rimaskóla við Rósarima 11, 112 Reykjavík.

Svæðið sem um ræðir er austan við skólann og milli skóla og færanlegru kennslustofa, um það bil 1.800 m². Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á allri lóðinni.

Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt.

Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.

Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Verktaki á að skila undirvinnu á leiksvæðum fyrir 15. júlí 2019 vegna vinnu við leiktæki, fallvarnarefni og gervigrasi. Vinna á vegum söluaðila þessa verkþátta á að vera á tímabilinu 15. júlí til 10. ágúst 2019.

Verktaki þarf að samræma sína vinnu gagnvart öðrum framkvæmdaraðilum á lóðinni og taka fullt tillit til þeirra vinnu. Þar sem framkvæmdir fara fram að hluta til á leikskólatíma, skal verktaki taka fullt tillit til þeirrar starfssemi.

Þetta á bæði við um umferð og hávaða vegna vinnu og vinnuvéla. Verktaki skal sjá til þess að vinnusvæði sé afgirt og umferð vinnuvéla utan afgirts vinnusvæðis eigi sér ekki stað án þess að aðstoðarmaður gæti þess að engin börn séu í hættu.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 mánudaginn 18. mars 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 9. apríl 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is