Home Fréttir Í fréttum 03.04.2019 Kjarvalsstaðir, viðgerðir á súlugluggum. Áfangi 2

03.04.2019 Kjarvalsstaðir, viðgerðir á súlugluggum. Áfangi 2

221
0
Kjarvalsstadir Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Kjarvalsstaðir,viðgerðir á súlugluggum. Áfangi 2. Útboð nr. 14472.
Verkið felst í viðgerðum og endurbótum á 14 súlugluggum á Kjarvalsstöðum.

<>

Helstu magntölur eru:
Rif og hreinsun undirbyggingar og kantklæðninga: 85 m
Endurnýjun ramma undir súluglugga: 85 m
Endurnýja gler, tvöfalt öryggisgler: 42 m2
Verklok 1. ágúst 2019.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00, föstudaginn 15. mars 2019. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar.

Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 3. apríl 2019