Ríkiskaup f.h. Isavia ohf óska eftir tilboðum í verkið:
VOPNAFJARÐARFLUGVÖLLUR
Ídráttarrörakerfi 2015
Verkið felst í að leggja allar lagnir, vegna ídráttarrörakerfis fyrir flugbrautarlýsingu. Helstu hlutar þess eru röralagnir í skurðum meðfram flugbrautum og flughlöðum að flugstöð. Í því fellst m.a. skurðgröftur, ídráttarbrunnar, undirstöður ljósa (kollur) og annað tengt því. Gamlar kollur teknar upp og fjarlægðar.
Helstu verkþættir og magntölur:
- Undirstöður ljósa gerð 1 59 stk
- Undirstöður ljósa gerð 2 8 stk
- Undirstöður ljósa, fjarlægðar 56 stk
- Ídráttarbrunnar, 3 stk
- Götugreiniskápar 2 stk
- Hlífðarrör 50mm 4450 m
- Hlífðarrör 75mm 80 m
- Hlífðarrör 110 mm 1250 m
- Jarðvír, óeinangraður 25mm2 cu 3400 m
- Skurðir 3550 m
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is miðvikudaginn 03. júní 2015. Tilboð verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska þriðjudaginn 16. júní 2015 kl. 15.00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík.