Home Fréttir Í fréttum Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu sinni til Ríkissáttasemjara

Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu sinni til Ríkissáttasemjara

150
0
Iðnaðarmenn vísa kjaradeilu til Ríkissáttasemjara Mynd: Vísir/Vilhelm

Samninganefnd iðnaðarmanna fundaði í dag með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins vegna endurnýjunar kjarasamninga félaganna.

<>

Á fundinum var staðan metin og í kjölfar umræðna ákváðu iðnaðarmenn að vísa kjaradeildunni til Ríkissáttasemjara í dag og á morgun. Þetta kemur fram á vef Rafiðnaðarsambandsins.

Þar kemur einnig fram að það sé gert til að koma á meiri festu í viðræðurnar undir stjórn sáttasemjara.

Samninganefnd iðnaðarmanna vonast að með þessum aðgerðum komist meiri skriður á þær viðræður sem framundan eru og leiði til þess að kjarasamningar verði undirritaðir.

Heimild: Visir.is