Home Fréttir Í fréttum 18.03.2019 Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 1 – 10.

18.03.2019 Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 1 – 10.

269
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 1, 2 og 3. Útboð nr. 14350.
Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 4 og 5. Útboð nr. 14351.
Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 6 og 7. Útboð nr. 14352.
Ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar. Reglubundið viðhald pípulagna – Hverfi 8, 9 og 10. Útboð nr. 14353.

Lauslegt yfirlit yfir verkin:
Bjóðandi skal sjá um þjónustuskoðanir ásamt viðhaldi á hita -, hreinlætis-, snjóbræðslu- og frárennsliskerfum í fasteignum Reykjavíkurborgar samkvæmt útboðsgögnum.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:00, fimmtudaginn 21. febrúar 2019.

Smellið á íslenska fánann neðst á síðunni til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða ,,Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:

Hverfi 1, 2 og 3 > Kl. 10:00 þann 18. mars 2019.
Hverfi 4 og 5 > Kl. 10:00 þann 20. mars 2019.
Hverfi 6 og 7 > Kl. 10:00 þann 22. mars 2019.
Hverfi 8, 9 og 10 > Kl. 10:00 þann 25. mars 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is