Home Fréttir Í fréttum 14.03.2018 Kröflulína 3 – Jarðvinna vegslóð og undirstöður: JÖKULSÁ Á FJÖLLUM –...

14.03.2018 Kröflulína 3 – Jarðvinna vegslóð og undirstöður: JÖKULSÁ Á FJÖLLUM – JÖKULSÁ Á DAL

305
0
Mynd: Mbl.is

Landsnet óskar eftir tilboðum í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður nýrrar Kröflulínu 3 eins og lýst er í útboðsgögnum KR3-02.

<>

Kröflulína 3 verður um 121 km og gert er ráð fyrir 329 möstrum á leiðinni.

Framkvæmdasvæðinu er skipt niður í þrjú aðskilin útboð. Verkin fela í sér gerð vegslóðar með línunni, gerð hliðarslóða og vinnuplana við möstur, jarðvinnu og niðurlögn forsteyptra undirstaða og stagfesta, borun og niðursteypa á bergboltum og gerð staðsteyptra undirstaða.

Þessi hluti útboðsins er frá Jökulsá á fjöllum að Jökulsá á Dal. Verkinu skal að fullu lokið 31. október 2019.

Helstu upplýsingar:
Lengd línukafla: 55,6 km
Fjöldi mastra: 149 stk
Ný vegslóð og hliðarslóðir: 17 km
Lagfæring eldri slóða: 13 km
Laus og fastur gröftur: 17.500 m3
Jarðbindiborði: 39 km
Flutningur og niðurlögn forsteyptra eininga: 543 stk
Bora fyrir og steypa niður bergbolta: 318 stk
Staðsteyptar undirstöður: 4 stk (36 m3)

Nánari upplýsingar er finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á útboðsvef Landsnets.

Tilboðum skal skila fyrir þann 14. mars 2019, kl. 11:00 í gegnum útboðsvef Landsnets.