Home Fréttir Í fréttum 20.03.2018 Kröflulína 3 – Jarðvinna vegslóð og undirstöður: JÖKULSÁ Á FJÖLLUM –...

20.03.2018 Kröflulína 3 – Jarðvinna vegslóð og undirstöður: JÖKULSÁ Á FJÖLLUM – JÖKULSÁ Á DAL

194
0
Kröflustöð Mynd: Landsvirkjun

Landsnet óskar eftir tilboðum í gerð vegslóðar, jarðvinnu og undirstöður nýrrar Kröflulínu 3 eins og lýst er í útboðsgögnum KR3-01.

<>

Kröflulína 3 verður um 121 km og gert er ráð fyrir 329 möstrum á leiðinni.

Framkvæmdasvæðinu er skipt niður í þrjú aðskilin útboð. Verkin fela í sér gerð vegslóðar með línunni, gerð hliðarslóða og vinnuplana við möstur, jarðvinnu og niðurlögn forsteyptra undirstaða og stagfesta, borun og niðursteypa á bergboltum og gerð staðsteyptra undirstaða.

Þessi hluti útboðsins er frá Kröflustöð að Jökulsá á fjöllum. Verkinu skal að fullu lokið 31. október 2019.

Helstu upplýsingar:
Lengd línukafla: 42,5 km
Fjöldi mastra: 113 stk
Ný vegslóð og hliðarslóðir: 28 km
Lagfæring eldri slóða: 16 km
Laus og fastur gröftur: 8.100 m3
Jarðbindiborði: 31 km
Flutningur og niðurlögn forsteyptra eininga: 309 stk
Bora fyrir og steypa niður bergbolta: 375 stk
Staðsteyptar undirstöður: 6 stk (160 m3)

Nánari upplýsingar er finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á útboðsvef Landsnets.
Tilboðum skal skila fyrir þann 20. mars 2019, kl. 11:00 í gegnum útboðsvef Landsnets.