Home Fréttir Í fréttum 14.02.2019 Dúkalagningar í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2019

14.02.2019 Dúkalagningar í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2019

159
0
Mynd: Reykjavik.is

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

<>

Dúkalagningar í ýmsum fasteignum Reykjavíkurborgar 2019. Útboð nr. 14405

Verk þetta felst í teppa- og dúkalögn í 21 fasteign Reykjavíkurborgar.

Fasteigninar eru:
Selásskóli, Árbæjarskóli, Ártúnsskóli, Árskógar 4, Rauðaborg, Seljakot, Hraunbær 103-105, Seljaskóli, Ársel, Íþróttahús Seljaskóla, Gerðuberg 1, Langholtsskóli, Laugarnesskóli, Austurborg, kvistaborg, Múlaborg, Hagaskóli, Ísaksskóli, Bjartahlíð Hamraborg, Bólstaðarhlíð 43, Grænaborg.

Um er að ræða rif og dúklagningu linoleum- dúka, vinyldúka og teppa

Helstu magntölur eru:
Linóleum dúkar: 3.000 m2
Vinyl dúkar: 200 m2
Lokaskiladagur verksins er 27. september 2019.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 29. janúar 2019.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Register“ eða „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 14 . febrúar 2019.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is