F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 6 og 7. Útboð nr. 14395.
Málun í fasteignum Reykjavíkurborgar – Hverfi 8, 9 og 10. Útboð nr. 14404.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða endurmálun og nýmálun í ýmsum mannvirkjum Reykjavíkurborgar.
Bjóðendum er heimilt að bjóða í einstök verkefni og/eða öll verkefnin.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00, þriðjudaginn 29. janúar 2019.
Smellið á íslenska fánann neðst á síðunni til þess að fá vefsíðuna upp á íslensku.
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða ,,Register“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 14. febrúar 2019.
Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is