F.h. umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Gönguleiðir og ræktun 2015, útboð nr. 13523
Lýsing á verkefninu : Verkið felst í gerð göngustíga og –stétta í Reykjavík, ásamt stígalýsingu, hellulögn, uppsetningu á tröppum með skábraut og ræktun. Helstu verkþættir eru gröftur, fylling, stéttasteypa, malbikun stíga, reising ljósastaura, skurðgröftur og lögn rafstrengja.
Verkstaðir eru:
Blesugróf: Gangstígur og tröppur, lýsing
Hátún: Gangstígur
Laugardalur: Götulýsing
Þorragata: Gangstétt
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr., frá miðvikudeginum 27. maí 2015, í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Þriðjudaginn 16. júní 2015 kl. 10:00, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.
Heimild: Reykjavíkurborg