Home Fréttir Í fréttum Vísir birtir alla reikningana frá braggabyggingu í Nauthólsvík

Vísir birtir alla reikningana frá braggabyggingu í Nauthólsvík

282
0
Mynd: visir/villhelm

Í meðfylgjandi skjali má sjá alla reikninga sem snúa að hinni umdeildu braggabyggingu í Nauthólsvík. Kannski má segja að í heildina tekið sé helsta einkennið þeirra það að margt smátt geri eitt stórt. Mjög stórt. En, vissulega eru þar kostnaðarliðir sem vekja undrun og Vísir hefur þegar greint skilmerkilega frá.

<>

Vísir óskaði eftir þessum upplýsingum fyrir viku en að sögn Bjarna Brynjólfssonar upplýsingastjóra Reykjavíkurborgar tók tíma að fara yfir alla reikningana að teknu tilliti til persónuverndarákvæða.

Strikað hefur verið yfir reikningsnúmer en til álita kom hvort forsvaranlegt væri að gefa upp ýmis einingaverð, vegna samkeppnissjónarmiða, en niðurstaðan var sú að það er birt.

Þeir lesendur sem vilja glöggva sig betur á kostnaði við bygginguna með því að skoða meðfylgjandi reikninga skulu athuga að fyrst getur að líta nokkrar blaðsíður með ýmsum tilvísunarnúmerum.

Fólk ætti ekki að láta það fæla sig frá og skrolla neðar í skjalið því þar má svo sjá reikninga sem lagðir hafa verið fram vegna byggingarinnar. Reikningarnir eru fyrir misháum upphæðum, allt frá nokkrum hundrað köllum uppí milljónir. Þarna er meðal annars að finna reikninga sem taka til byggingar náðhússins og dönsku stráanna sem og reikninga fyrir rokjárnum og lömum.

Ekki ætti að þurfa að orðlengja að málið hefur valdið gríðarlegri pólitískri ólgu í Reykjavík; hart hefur verið sótt að Degi B. Eggertssyni borgarstjóra, einkum af þeim Eyþóri Arnalds oddvita Sjálfstæðisflokksins, Vigdísi Hauksdóttur fulltrúa Miðflokksins í borgarstjórn og Kolbrúnu Baldursdóttur Flokki fólksins. Kostnaður við endurbygginguna fór úr áætluðum 155 milljónum í 415 milljónir.

Heimild: Visir.is

Tengd skjöl
Sundurliðaðir reikningar vegna braggans í Nauthólsvík (567 síður)