Á fyrstu sex mánuðum ársins keypti Reykjavíkurborg það sem kallast sérfræðiþjónusta og önnur vörukaup án útboðs fyrir ríflega 574 milljónir króna. Þetta samsvarar ríflega 7 prósentum af heildarinnkaupum borgarinnar á tímabilinu. Oddviti Sjálfstæðisflokksins segir þetta óþægilega háa fjárhæð sem þarfnist útskýringa.
Fyrr í mánuðinum gerði fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í innkauparáði borgarinnar athugasemdir við þennan óútskýrða kostnað eins og hann birtist í yfirliti skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar borgarinnar. Sagði fulltrúinn, Björn Gíslason, yfirlitið „ískyggilegt“ í bókun á fundi ráðsins.
Guðlaug S. Sigurðardóttir, fjármálastjóri skrifstofu eigna- og atvinnuþróunar, segir í svari við fyrirspurn blaðsins að rúmum 277 milljónum hafi verið varið í „kaup á sérfræðiþjónustu“ á fyrstu sex mánuðum ársins og ríflega 296 milljónir fóru í „önnur vörukaup“. Án útboðs.
„Kaup á sérfræðiþjónustu og önnur vörukaup nema því samtals 574.273.893 krónum,“ segir Guðlaug. Hún vill þó setja upphæðina í samhengi við heildarfjárfestingu á fyrri helmingi ársins.
„Þær 574 milljónir – heildarinnkaup án útboðs eru því 7,16% af 8.020 milljóna heildarinnkaupum.“
Fréttablaðið óskaði eftir sundurliðun á 574 milljónunum en fékk þau svör að innkauparáð myndi fá hana fyrst og fara yfir á næsta fundi.
„Þetta er óþægilega há tala á stuttum tíma,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni. Nauðsynlegt sé að fá frekari útskýringar á kostnaðinum.
„Þegar boðið er út færðu hagkvæmari innkaup en einnig er hafið yfir allan vafa að það séu engin önnur sjónarmið sem ráða. Þjóðin var hneyksluð á 22 milljóna króna ljósareikningi á Þingvöllum en ítrekað erum við að sjá í borginni tölur sem eru óútskýrðar eða framúrkeyrslu sem nemur hundruðum milljóna.“
Fréttablaðið leitaði viðbragða borgarstjóra vegna málsins en aðstoðarmaður hans vísaði á svar Guðlaugar og taldi ekki tilefni til að bregðast frekar við gagnrýni Sjálfstæðismanna.
Heimild: Visir.is