Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og þrír aðrir heiðursborgarar Reykjavíkur skora á borgina og byggingaraðila að láta af áformum um byggingu hótels í Víkurgarði. Skipulagið og bygging hótelsins eigi sér rætur í mistökum í skipulagi. Borgarstjóri segist ætla að skoða áskorunina og leggja hana fram í borgarráði.
„Það hlýtur að vera sameiginlegt einkenni heiðursborgara að þykja vænt um borgina og vilja henni allt gott. Ef eitthvað kemur upp á sem okkur líst ekki á, held ég að það sé gott að við getum bundist samtökum um að gera eitthvað. Það er sterkara en að standa einn,“ segir Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands í skák og heiðursborgari Reykjavíkur.
Friðrik hefur ásamt þremur öðrum heiðursborgurum, Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, Þorgerði Ingólfsdóttur, tónlistarkennara og kórstjóra, og myndlistarmanninum Erró, sent borginni og byggingaraðilum hótels á Landsímareit áskorun um að láta af áformum um að reisa hótel í Víkurgarði.
Segir í áskoruninni að það sé óverjandi að hótel verði reist í einum elsta kirkjugarði landsins og helgistað í borginni. Ljóst sé að skipulag og bygging hótels á þessum stað eigi sér rætur í vanþekkingu á sögu Víkurgarðs og mistökum við gerð deiliskipulags. Hagnaðarvon og stundarhagsmunir ryðji burt virðingunni og helginni.
Friðrik, Vigdís og Þorgerður áttu í gær fund með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra og Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, formanni borgarráðs.„Ég veit ekki hversu miklu við fengum áorkað en við lifum í voninni að borgin sjái að sér. Það eru margir veikir blettir í þessu. Ég er með á hreinu að það hafa verið framdar margar lögleysur í þessu máli af hálfu borgaryfirvalda og fleiri sem að þessu koma,“ segir Friðrik.
Dagur segir fundinn hafa verið góðan. „Ég skil áhyggjur af uppbyggingu á þessum lykilstað í hjarta borgarinnar. Við létum fara vel yfir þetta. Garðurinn var aflagður 1837. Það er með hliðsjón af því sem borgin hefur tekið ákvarðanir.“
Hann segir mikilvægt að hafa í huga að tekist hafi að tryggja endurgerð Nasa-salarins og gömlu húsanna sem snúa út að Ingólfstorgi. Uppbygging fari ekki inn í gamla kirkjugarðinn. „Við munum fara yfir áskorunina og leggja hana fram í borgarráði.“
Þórdís Lóa segist ánægð með að borgarar láti sig mál varða með þessum hætti. „Málið er komið langt. Það liggja fyrir byggingarheimildir og deiliskipulag þannig að við stoppum þetta ekki svo glatt.“
Þórdís Lóa segir að sitt sýnist hverjum um hvort verið sé að byggja í Víkurgarði. „Borgin metur það sem svo að ekki sé verið að byggja ofan á sjálfum garðinum heldur á bílastæði sem var fyrir framan Landssímahúsið.“
Heimild: Visir.is