Home Í fréttum Undirskrift samninga utboda Samið við Skófluna hf. um gerð göngustígs við Garðalund og á Breið

Samið við Skófluna hf. um gerð göngustígs við Garðalund og á Breið

284
0
Frá undirritun verksamnings. Mynd: Akranes.is

Þriðjudaginn 14. ágúst síðastliðinn var undirritaður verksamningur við Skófluna hf. um gerð göngustígs frá Ketilsflöt að Garðalundi og að útbúa steyptan stíg/ götu á Breið.  Alls bárust þrjú tilboð í verkið sem opnað var 17. júlí síðastliðinn og var Skóflan hf. lægstbjóðandi með 32,6 mkr. Framkvæmdir hefjast nú í ágúst og á að vera lokið eigi síður en 30. september næstkomandi.

<>

Verkið felst í að malbika þriggja metra breiðan göngu- og hjólastíg frá Ketilsflöt að Garðalundi, vestan götunnar eða í beinu framhaldi að stíg sem var lagður árið 2017 sem og einnig að gera stíg/götu frá timburbryggju að svokölluðu Hafbjargarhúsi á Breið. Síðari framkvæmdin er í samræmi við styrkveitingu sem Akraneskaupstaðar fékk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í apríl sl. vegna verkefnisins „Vitastígur á Breið“.

Styrkurinn, samtals kr. 11,1 mkr., var veittur til að ljúka við um 150 metra langan stíg frá bílastæði og aðkomutorgi að áningastaðnum, yst á tanganum á Breið. Stígurinn er liður í heildarskipulagi fyrir nýjan öflugan ferðamannastað sem Breiðin er þegar orðin og er áhersla lögð á að það verði gott aðgengi fyrir alla að svæðinu.

Heimild: Akranes.is