Home Fréttir Í fréttum Kvika og einkafjárfestar kaupa lóðir í Vogabyggð

Kvika og einkafjárfestar kaupa lóðir í Vogabyggð

443
0
Ólafur Ólafsson, einn aðaleigandi Festis. Mynd: Vísir/eyþór

Dótturfélag byggingafélagsins Kaldalóns, sem er í eigu Kviku banka og einkafjárfesta, hefur keypt byggingarrétt á lóðum í Vogabyggð af systurfélagi fasteignaþróunarfélagsins Festis.

<>

Gengið var frá kaupunum í síðustu viku en kaupverðið er trúnaðarmál, að sögn Róberts Arons Róbertssonar, framkvæmdastjóra Festis.

Til stendur að byggja 270 íbúðir á lóðunum sem eru í hverfinu Vogabyggð 1 á Gelgjutanga en aðeins eru sextán mánuðir síðan Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og fulltrúar Festis skrifuðu undir samning um uppbygginguna.

Aðaleigendur Festis eru hjónin Ólafur Ólafsson, sem er gjarnan kenndur við Samskip, og Ingibjörg Kristjánsdóttir. Fasteignaþróunarfélagið hefur unnið að verkefninu síðustu ár og áformaði að hefja uppbyggingu á þessu ári. Kaupandinn er félagið U 14-20, dótturfélag byggingafélagsins Kaldalóns sem er í rekstri Kviku banka.

Fram kemur í bréfi skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar, sem lagt var fyrir borgarráð í lok júní, að kaupverð byggingarréttarins á fjórum lóðum í Vogabyggð sé um 62 þúsund krónur á fermetra miðað við 24.290 fermetra, sem er leyfilegt hámarks byggingamagn samkvæmt skipulagi, eða alls um 1,5 milljarðar króna.

Gert er ráð fyrir rúmlega 1000 íbúðum í Vogabyggð.Reykjavíkurborg

Eru 60 prósent kaupverðsins greidd með íbúðum í Urriðaholti sem verða afhentar eftir um tvö ár.

Fyrir umrædd kaup hafði Kaldalón, sem var stofnað á síðasta ári, rétt til þess að byggja alls um 600 íbúðir í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ en félagið tekur meðal annars þátt í uppbyggingu á hátt í 180 íbúðum í Vesturbugt við Reykjavíkurhöfn.

Í lok síðasta árs var stærsti hluthafi byggingafélagsins Kaldalóns einkahlutafélagið RES með tæplega 46 prósenta hlut en það er til helminga í eigu hjónanna Nönnu Bjarkar Ásgrímsdóttur og Sigurðar Bollasonar og hjónanna Gunnars Henriks B. Gunnarssonar og Lovísu Ólafsdóttur. Félagið RPF, í eigu Gunnars Sverris Harðarsonar og Þórarins Arnars Sævarssonar, eigenda RE/ MAX Senter, var næststærsti hluthafi Kaldalóns með 16 prósenta hlut en tvímenningarnir áttu auk þess hlut í byggingafélaginu í gegnum fleiri eignarhaldsfélög.

Þá fór Kvika banki með 10,5 prósenta hlut í Kaldalóni, samkvæmt ársreikningi byggingafélagsins. Í áðurnefndu bréfi skrifstofu eigna og atvinnuþróunar Reykjavíkurborgar segir að fyrir liggi yfirlýsing frá Kaldalóni um nauðsynlegan fjárhagslegan stuðning við U 14-20 til þess að standa við skuldbindingar sínar við fyrirhugaðar byggingarframkvæmdir í Vogabyggð 1. Er jafnframt tekið fram að Kaldalón sé með góða eiginfjárstöðu. Gert er ráð fyrir að alls rísi 1.100 til 1.300 íbúðir í allri Vogabyggð á næstu árum.

Heimild: Visir.is