Home Fréttir Í fréttum Landspítali óskar eftir leiguhúsnæði undir skrifstofur

Landspítali óskar eftir leiguhúsnæði undir skrifstofur

207
0

Ríkiskaup, fyrir hönd ríkissjóðs, óska eftir að taka á leigu húsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrir skrifstofur Landspítala. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.

<>

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 15 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um ákveðna staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu, gott aðgengi þar með talið fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og næg bílastæði. Skrifstofur Landspítala eru þjónustustofnun fyrir almenning og þjóna starfsstöðvum Landspítala, því skiptir staðsetning húsnæðisins, það er nálægð við helstu stofnbrautir og almenningssamgöngur, miklu máli við staðarval. Nálægð við aðalstarfsstöðvar Landspítala við Hringbraut og í Fossvogi er mikilvæg og því er gerð krafa um að húsnæðið sé í ákveðnum póstnúmerum (101 austan Suðurgötu,103,105 og 108).

Húsrýmisþörf er áætluð um 4.932 fermetrar. Húsnæðið er hefðbundið skrifstofu- og þjónustuhúsnæði.

Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á heimasíðu Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, þriðjudaginn, 5. júní 2018. 

Við mat á hagkvæmni tilboða verður meðal annars tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.

Fyrirspurnir varðandi verkefni 20788 skulu sendar á netfangið utbod@rikiskaup.is og verða svör birt á vef Ríkiskaupa.

Fyrirspurnarfrestur rennur út miðvikudaginn 20. júní en svarfrestur er til og með 25. júní 2018. 

Leigutilboðum skal skila til Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 15:00 fimmtudaginn 28. júní 2018.

Merkja skal tilboðin: 20788 – Landspítali – Leiguhúsnæði. 

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. 24. gr.

Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Afhendingartíma húsnæðis
  • Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar
  • Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
  • Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
  • Húsgjöld
  • Gildandi deiliskipulag svæðis, það er lóðar og aðlægra lóða
  • Tilvísun í gildandi aðalskipulag
  • Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um að húsnæðið sé laust við myglu. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning.

Númer: 20788

Fyrirspurnarfrestur: 20.06.2018

Skilafrestur: 28.6.2018