Home Fréttir Í fréttum Milljarða fram­kvæmdir í Hvera­gerði

Milljarða fram­kvæmdir í Hvera­gerði

588
0
Reiknað er með að fyrstu íbúðirnar af þeim 77 sem verði byggðar verði tilbúnar í haust. Mynd/JÁVERK.

Í dag var tekin fyrsta skóflustungun af nýjum 77 íbúðum á svokölluðum Edenreit í Hveragerði. Íbúðirnar verða á tveimur til þremur hæðum og verður stærð þeirra frá 55-95 fermetrar.

<>

„Þessar íbúðir eru afar áhugaverður kostur fyrir bæði þá sem vilja minnka við sig og barnafólk sem vill komast í sveita og gróðursæluna í Hveragerði“, segir Gísli Steinar Gíslason, stjórnarformaður Suðursala sem er verkkaupi.

Það voru þau Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri og Gísli Steinar Gíslason hjá Suðursölum sem tóku fyrstu skóflustunguna í dag að viðstöddum bæjarfulltrúum í Hveragerði og fasteignasala frá Byr fasteignasölunni í Hveragerði sem mun sjá um sölu íbúðanna.Vísir/Magnús Hlynur.

Jáverk á Selfossi mun byggja íbúðirnar en Jarðvinna og gatnagerð hefst á næstu vikum og unnið er að hönnun íbúðanna á meðan. Skipulagið gerir ráð fyrir að halda í Edensöguna með gróðri og gróðurhúsum á lóðinni. Fyrstu íbúðir gætu verið afhendar næsta haust.

„Þetta er stærsta íbúðaverkefni sem unnið hefur verið í Hveragerði enda framkvæmd upp á um tvo milljarða króna“, segir Gylfi Gíslason hjá Jáverki.

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri fagnar framkvæmdunum. „Það er mikil eftirspurn eftir húsnæði í Hveragerði og því er frábært að fá þessar nýju íbúðir í fjölbýlishúsum og raðhúsum fyrir fólk á öllum aldri. Það má segja að það hafi verið uppselt í Hveragerði síðustu tvö árin því ef það kemur hús á sölu þá selst það strax. Þetta mun vonandi breytast með nýju íbúðunum á Edenreitunum,“ segir Aldís.

Heimild: Visir.is