Home Fréttir Í fréttum 25.05.2018 Endurbætur, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði

25.05.2018 Endurbætur, Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði

278
0
Reyðarfjörður

Vegagerðin óskar eftir tilboði í endurbætur á húseigninni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði. Helstu verkþættir eru endurnýjun þakvirkis og klæðning utanhúss ásamt einangrun og endurnýjun á gluggum á austurhúsi. Innanhúss er rif á gólfefnum, loftum, milliveggjum og klæðningu innan á útveggi. Verktími er 1. júní – 30. október 2018.

<>

Helstu magntölur eru:

  • Þakvirki – endurnýjun………… 380 m2
  • Utanhússklæðning……………. 290 m2
  • Endurnýjun glugga……………..75 m2
  • Rif innanhúss………………………..475 m2

Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni Búðareyri 7 á Reyðarfirði frá og með föstudeginum 11. maí 2018.

Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.14:00 föstudaginn 25. maí 2018 og verða þau opnuð þar sama dag.