Home Fréttir Í fréttum 03.05.2018 Hverfið mitt vesturhluti útboð 4, Háaleiti-Bústaðir

03.05.2018 Hverfið mitt vesturhluti útboð 4, Háaleiti-Bústaðir

170
0
Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Hverfið mitt vesturhluti útboð 4, Háaleiti-Bústaðir. Útboð nr. 14242

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2018 í vesturhluta Reykjavíkurborgar.
Í þessu verki er um að ræða verkefni í hverfi 5, þ.e. Háaleiti-Bústöðum. Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, hellulögn og malbikun.

Helstu magntölur eru: 
•   Gröftur                       650     m3
•   Fylling                        550     m3
•   Hellulögn                   130     m2
•   Malbik                       350     m2

Verklok: September 2018

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 18. apríl 2018. 
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:40 þann 3. maí 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is