Home Fréttir Í fréttum 08.05.2018 Grandaskóli. Endurgerð lóðar – Jarðvinna

08.05.2018 Grandaskóli. Endurgerð lóðar – Jarðvinna

128
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Grandaskóli. Endurgerð lóðar – Jarðvinna. Útboð nr. 14196.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið er endurgerð lóðar grunnskólans Grandaskóla við Keilugranda 12, 107 Reykjavík.  Það er suðaustur hluti lóðarinnar sem er undir, um það bil 3.000 m².  Um er að ræða lagfæringu / styrkingu á allri lóðinni. Aðgengi fyrir alla, leiktæki, yfirborðsefni og svæði fyrir hugmyndaleiki barna verður bætt. Helstu verkliðir eru jarðvinna, landmótun, hellulögn, frágangur gras- og gróðursvæða og frágangur kringum leiktæki.
Verkkaupi leggur til leiktæki, fallvarnarefni, gervigras og yfirborðs meðhöndlun malbiks og verða þeir verkliðir unnir, af verktökum / aðilum á vegum söluaðila viðkomandi efna, samhliða verkþáttum jarðvinnuverktaka.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 13:00 þann 17. apríl 2018.  
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 8. maí 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is