Home Fréttir Í fréttum 03.05.2018 Hverfið mitt vesturhluti útboð 3, Grafarvogur og Grafarholt-Úlfarsárdalur

03.05.2018 Hverfið mitt vesturhluti útboð 3, Grafarvogur og Grafarholt-Úlfarsárdalur

363
0
Úlfarsárdalur

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í:

<>

Hverfið mitt vesturhluti útboð 3, Grafarvogur og Grafarholt-Úlfarsárdalur. Útboð nr. 14243

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í framkvæmdum á hluta þeirra verkefna sem hlutu kosningu í gegnum verkefnið Hverfið mitt 2018 í austurhluta Reykjavíkurborgar.
Í þessu verki er um að ræða verkefni í hverfi 8 og 10, þ.e. Grafarvogi og Grafarholti-Úlfarsárdal Verkefnin eru fjölbreytt og eru helstu verkliðir jarðvinna, gróðurbeð og gróðursetning.

Helstu magntölur eru:  
•      Gróðurbeð                     350 m3
•      Gróðursetning               350 stk.
•      Trjákurl                           650 m2

Verklok: September 2018

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 15:00 þann 18. apríl 2018. 
Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“ eða „Register“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:50 þann 3. maí 2018.

Ekki verður haldinn formlegur opnunarfundur, nema að bjóðendur óski sérstaklega eftir því. Beiðni verður að hafa borist innkaupadeild 2 virkum dögum fyrir opnun tilboða, á netfangið utbod@reykjavik.is