Home Fréttir Í fréttum Fyrrum húsmæðraskóla breytt í hótel í Borgarfirði

Fyrrum húsmæðraskóla breytt í hótel í Borgarfirði

503
0
Skjáskot af Ruv.is
Unnið er hörðum höndum að því að breyta húsi sem gegndi áður hlutverki húsmæðraskóla Borgfirðinga í hótel. Hönnuður breytinganna segir að leitast sé við að mæta kröfum nútímahótelgesta um leið og saga hússins er höfð í heiðri.

Húsmæðraskólinn að Varmalandi var stofnaður árið 1946 að frumkvæði borgfirskra kvenna. Þar var svo hússtjórnarskóli fram á 9. áratug síðustu aldar. Enginn rekstur var í húsinu þegar Borgarbyggð seldi það árið 2015 og nú er unnið að því að breyta skólanum í hótel.

<>

„Þetta er rosalega skemmtileg staðsetning, mikið hérna í kring, mikið af afþreyingu, Víðgelmir einn stærsti hellir á Íslandi, Deildartunguhver sem er vatnsmesti hverinn og svo er stutt í Into the glacier og hægt að fara í dagsferðir á Snæfellsnes og okkur fannst þetta bara mjög hentug staðsetning fyrir hótel,“ segir Magnús Már Hauksson, aðstoðarmaður eigenda Hótels Varmalands.

Guðjón Samúelsson, fyrrum húsameistari ríkisins, teiknaði húsið og undanfarið hefur verið lögð vinna í að laga húsið að kröfum nútíma hótelgesta. „Þetta er alltaf „konfliktið“ að halda í það gamla, virða og varðveita það gamla, en síðan að mæta kröfum verkkaupa. En við höfum átt í góðu samstarfi og leist þetta farsællega tel ég,“ segir Þorsteinn Aðalbjörnsson, byggingafræðingur hjá Artstone.

Þorsteinn segir að áður fyrr hafi sveitabæir styrkt skólann og því verði áfram haldið í heiðri: „Öll herbergin fengu nöfnin á sveitabæjunum. Við ætlum að halda því. Þetta er sextíu herbergi og við tókum nöfn af sextíu bæjum í kring og hvert herbergi fær sitt nafn.“

Nú þegar er farið að bóka gistingu á hótelinu og það hefur einnig verið bókað fyrir ættarmót og brúðkaup. „Það er stefnt að því að opna þetta hótel í maí og fyrstu hópar eru að koma svona í enda maí, júní,“ segir Magnús Már.

Heimild: Ruv.is