Home Fréttir Í fréttum Íbúðir í byggingu um allt Vesturland

Íbúðir í byggingu um allt Vesturland

114
0
Akranes. Mynd: Vísir/GVA

Íbúðir eru í byggingu í flestöllum sveitarfélögum á Vesturlandi og skortur á íbúðum mestur á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit.

<>

Þetta kemur fram í hagvísi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem unninn var af Vífli Karlssyni, doktor í hagfræði við Háskólann á Akureyri.

„Heilt yfir standa sveitarfélög á Vesturlandi sig nokkuð vel í að bjóða lóðir til íbúðabygginga þar sem tilbúnar lóðir eru á bilinu tvö til 39 prósent af fjölda íbúða í viðkomandi sveitarfélögum. Í flestum tilvikum er þar um hreina fjölgun íbúa á íbúðamarkaði í viðkomandi sveitarfélagi að ræða,“ segir Vífill.

Íbúðaverð hefur hækkað mikið á Íslandi síðustu árin og hefur Vesturland ekki farið varhluta af þeirri hækkun.

Íbúðum á Vesturlandi hefur fjölgað um þriðjung frá árinu 1994 eða öllu minna en á Suðurnesjum, Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðum á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað um helming, örlitlu minna á Suðurlandi en um rúmlega 80 prósent á Suðurnesjum.

Síðastliðið haust, þegar könnun var gerð meðal sveitarfélaga á Vesturlandi, kom í ljós að 192 íbúðir voru í byggingu, flestar á Akranesi og í Borgarbyggð. Einnig voru margar lóðir tilbúnar fyrir byggingar í öðrum sveitarfélögum á svæðinu.

Heimild: Visir.is