Home Fréttir Í fréttum Hafnar vegg á eigin lóð til að leysa ljósmengun

Hafnar vegg á eigin lóð til að leysa ljósmengun

256
0
Lausnin sem Kópavogsbær býður er að byggja vegg á lóð Þorrasala 9-11 til að skerma íbúana þar af frá ónæði af bílageymslu nágrannanna. Veggurinn er sýndur með rauðu. Mynd: Visir.is

Valgeir Jónasson, vélfræðingur og formaður Húsfélagsins í Þorrasölum 9-11, hafnar fullyrðingu Ármanns Kr. Ólafssonar, bæjarstjóra í Kópavogi, um að Valgeir hafi ekki óskað eftir samtali við hann.

<>

Í Fréttablaðinu síðastliðinn fimmtudag sagði Valgeir að Ármann bæjarstjóri svaraði ekki skilaboðum og vildi ekki ræða  við íbúana í Þorrasölum 9-11 eftir að þeir unnu kærumál vegna leyfis sem bærinn gaf fyrir breyttri aðkomu að bílageymslu nágrannablokkar. Því hafnaði bæjarstjórinn í Fréttablaðinu daginn eftir.

„Mér hafa hvorki borist skilaboð né beiðni um fund frá húsfélaginu,“ sagði Ármann. Þetta segir Valgeir ekki rétt. „Ég hafði samband við Kópavogsbæ viku áður en greinin kom í Fréttablaðið og bað um að bæjarstjóri hefði samband við mig en ég fékk bara samband við ritara hans og ætlaði hún að koma skilaboðum til bæjarstjóra,“ fullyrðir Valgeir.

Húsfélagsformaðurinn segist í þessu samtali við ritarann hafa gefið bæjarstjóranum vikufrest áður en hann færi með málið í fjölmiðla. „Og ætlaði hún að koma skilaboðum til bæjarstjóra, en hann hefur ekki viljað vera að ómaka sig fyrir íbúa bæjarins sem greiða honum laun fyrir að sinna störfum bæjarfélagsins.“

Þá segir Valgeir að eftir að fréttin hafi birst á  miðvikudag hafi bærinn sent tillögu til lausnar málinu. „Þetta er nákvæmlega sama plaggið og Kópavogsbær bauð árið 2016,“ segir hann. Tillagan er um að reistur verði veggur til að skerma af ljósgeisla og hljóð frá innkeyrslunni í bílageymslu nágrannana.

„Við höfnum alfarið því sem Kópavogsbær er að bjóða sem er að fara inn á lóð okkar og byggja vegg þar.“ Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti í september í fyrra leyfi sem Kópavogsbær gaf fyrir því að umrædd innkeyrsla í bílageymslu Þorrasala 13-15 sneri að Þorrasölum 9-11 í stað þess að vísa að götunni sjálfri.

„Nú verður Kópavogsbær að fara að hysja upp um sig buxurnar og hlýða þessum úrskurði. Ef þeir ætla ekkert að fara eftir úrskurðinum er ekkert fyrir okkur annað að gera en að fara með þetta í dómsmál – og fer það þá þangað nú um næstu mánaðamót,“ segir formaður Húsfélagsins í Þorrasölum 9-11 og ítrekar ósk sína um samtal við bæjarstjóra sem hann kveður ekki enn hafa svarað skilaboðum.

Heimild: Visir.is