Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti í dag framkvæmdaleyfi sem Hafnarfjarðarkaupstaður gaf út til Landsnets vegna Lyklafellslínu 1. Hafnarfjarðarkaupstaður harmar niðurstöðuna og segja framkvæmdir við að fjarlægja Haraneslínur og flytja Ísalínur muni tefjast til muna. Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Hraunavinir kærði útgáfu framkvæmdaleyfisins og sögðu of mikla áhættu tekna með vatnsból íbúa á höfuðborgarsvæðinu.
„Úrskurðurinn er áfall fyrir sveitarfélagið og ljóst að áratuga bið eftir því að línurnar hverfi úr Skarðshlíð og Hamranesi styttist ekki við þennan úrskurð. Nú verður Landsnet að svara því með hvaða hætti þeir taka það verkefni áfram en það er ljóst að þetta þolir enga bið og bæjarbúar og bæjaryfirvöld vilja þessar línur burtu. Við eigum fund með þeim í fyrramálið klukkan níu þar sem meðal annars verður farið verður fram á skýr svör um framhaldið,“ segir Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar.
Hafnarfjarðarkaupstaður segist hafa fjárfest í mikilli uppbyggingu á svæðinu ásamt lóðarhöfum á svæðinu en gert sé ráð fyrir um 520 íbúðum í Skarðshlíðarhverfinu einu og sér. Þar sé verið að byggja grunn-, leik- og tónlistarskóla ásamt íþróttasal fyrir um fjóra milljarða króna.
Línan hefur verið á framkvæmdaáætlun kerfisáætlunar 2015-2024 og því samþykkt af Orkustofnun. Framkvæmdin hafði einnig farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum.
„Við förum núna í það að kanna stöðu sveitarfélagsins í þessu máli og næstu skref en þetta eru ekki þær fréttir sem við hefðum vonað að fá frá úrskurðarnefndinni. Um leið og við hörmum þetta erum við ekki að gera lítið úr áhyggjum kærenda.“
Heimild: Visir.is