Home Fréttir Í fréttum “Sala á hlut borgarinnar í Landsvirkjun var reginhneyksli“

“Sala á hlut borgarinnar í Landsvirkjun var reginhneyksli“

69
0
VÍSIR/VILHELM

„Það sannast nú enn og aftur að sala á hlut borgarinnar í Landsvirkjun var reginhneyksli,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgastjóri í færslu sem hann ritar á Facebook við frétt um að Landsvirkjun muni geta greitt tíu til tuttugu milljarða í arð árlega eftir tvö til þrjú ár.

<>

Árið 2006 seldu Akureyrarbær og Reykjavíkurborg ríkinu samanlagt helmingshlut í Landsvirkjun. Þar af átti Reykjavíkurborg 44,5% og Akureyrarbær 5,5%. Fyrir hlutina voru greiddir 30,25 milljarðar, þar af 3,4 milljarðar þegar kaupin gengu í gegn við upphaf árs 2007. Eftirstöðvarnar voru greiddar með skuldabréfum til 28 ára sem runnið hafa til lífeyrissjóða sveitarfélaganna, þ.e. Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar, til að mæta lífeyrisskuldbindingum vegna starfsmanna þeirra.

Dagur segir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi keyrt söluna í gegn þrátt fyrir hörð mótmæli og baráttu minnihlutans. „Okkar megingagnrýni, sem úttektarnefnd Reykjavíkurborgar tók síðar undir, var sú að verðmæti Landsvirkjunar væru gróflega vanmetin. Þessar áætlanir um framtíðar-arð eru enn ein staðfestingin á því,” segir Dagur.

Borgin í ábyrgð fyrir lánum eftir söluna
Í kaupsamningnum voru ákvæði um að Reykjavíkurborg yrði áfram í ábyrgð fyrir hluta af skuldum Landsvirkjunar eftir söluna. Þær ábyrgðir stóðu í 110 milljörðum króna um mitt ár 2009 samkvæmt frétt Eyjunnar. Hefði Landsvirkjun lent í greiðsluerfiðleikum og ekki geta greitt af lánum sínum hefði hluti af skuldum fyrirtækisins lent á Reykjavíkurborg þrátt fyrir að borgin ætti ekki lengur hlut í fyrirtækinu.

Dagur segir að helstu rökin fyrir sölunni hafi verið að borgarbúar væru í of miklum ábyrgðum í orkumálum, sem nær helmingseigendur í Landsvirkjun og 96% eigendur að Orkuveitu Reykjavíkur. „Borgarfulltrúar eiga gæta hagsmuna borgarbúa og borgarsjóðs – meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerðu það ekki í þessu máli og verða að svara fyrir það,“ segir Dagur.

Heimild: Visir.is